Um okkur
Íslensk spil sem fá alla til að hlæja
Steindropi ehf. er lítið íslenskt útgáfufyrirtæki sem býr til spil fyrir alla fjölskylduna. Markmiðið er einfalt: spil sem auðvelt er að læra, allir geta tekið þátt í – og enda alltaf í hlátri í kringum borðið.
Fólkið á bak við spilin

Arnaldur Gauti Johnson og Kristinn Pálsson hafa um árabil komið að útgáfu íslenskra spila, ýmist saman eða hvor í sínu lagi. Meðal spila sem þeir hafa gefið út eru:
- Fjör til enda
- Nefndu 3
- Skellur, Alvöru Skellur og Partý Skellur
Svaraðu rangt

Nýjasta fjölskyldan er Svaraðu rangt, sem þeir gerðu ásamt Ásgeiri Páli Ágústssyni. Spilið er byggt á hinum vinsæla leik á K100 og sló í gegn þegar það kom út 2025. Nú bætast við Svaraðu rangt – Jóla og Svaraðu rangt – Krakka.
Nefndu 3 snýr aftur

Árið 2026 kemur Nefndu 3 aftur í afmælisútgáfu, 11 árum eftir að það kom fyrst út. Takmarkað upplag.
Búið til á Íslandi
Öll spilin okkar eru hugsuð, skrifuð og hönnuð á Íslandi – á íslensku, fyrir íslenskar fjölskyldur.
Steindropi ehf.
Kleppsmýrarvegur 8, 104 Reykjavík
Kt. 580418-1200 · VSK nr. 131297
info@steindropi.is